Háþrýst glussaslanga HD500 (4SH)

Vökvaslanga fyrir háþrýst kerfi (EN 856 4 SH).
Innra lag úr olíuþolnu gúmmílíki, styrktarlag er fjórföld fléttuð vírkápa og ytra lag úr veður-, hita- og ósonþolnu gúmmílíki.
Hitaþol: -40°C/+100°C
Þanþol: +2%/-4%
Miðlar: Olíur og glussi, vatn, olíu- og vatnslausnir.
Með þessum slöngum henta tengi úr flokki:
Stáltengi – Powertrak