Okkar menn fyrir norðan

Dótturfyrirtæki Landvéla á Akureyri er Straumrás ehf. Rótgróið fyrirtæki sem þekkir sinn heimamarkað vel og nýtur nálægðar við öfluga útgerð og iðnað norðan heiða.

Hjá fyrirtækinu starfa hressir og kraftmiklir strákar með góða og haldbæra reynslu. Verslunarstjóri og æðsti prestur er Guðni Hermannsson.

Kjarnastarfsemi Straumrásar svipar til Landvéla þar sem slöngusmíði er kjölfestan. Vöruflokkarnir endurspegla vöruframboð Landvéla en gott betur þar sem fyrirtækið höndlar með ýmsar vörur í endursölu frá öðrum innlendum heildsölum. Má þar nefna raf- og vélavörur, en einnig ýmis verkfæri, öryggis- og efnavörur o.fl. o.fl.. Einnig er gott úrval af bílavörum fyrir trukka og tæki, reimum o.s.frv.. Nálægðin við bændur og þjónusta við ferðamenn með tjaldvagna og fellihýsi litar svo starfsemina á sumrin.

Í raun má segja að það sé eitt ævintýri að heimsækja verslun Straumrásar sem ber sterkan keim að því að vera sá aðili sem reddar flest öllu er snýr að vélbúnaði og tækjum og gott betur. Stemingin er skemmtileg og strákarnir allir af vilja gerðir að þjóna sínum viðskiptavinum.

Straumrás ehf, Furuvöllum 3, Akureyri
Sími: 461 2288
Netfang: straumras@straumras.is
Heimasíða: www.straumras.is

Opnunartími er kl. 7:30 til 17:00 mánudaga til fimmtudaga. Á föstudögum lokar 16:00

Neyðarnúmer utan hefðbundins opnunartíma er 892 5526