Verslun Landvéla er vel staðsett og með góðu aðgengi. Fjöldi sölumanna er á annan tug og atið oft mikið enda verkefnin fjölbreytt og oft tæknilega krefjandi, allt frá því að afhenda eina hosuklemmu eða O hring í það að vera ráðgjöf og sala á flóknum lausnum eða íhlutum. Vöruúrvalið spannar mjög vítt svið af rekstrar- og tæknivöru þar sem verðmæti birgða hleypur á hundruðum milljóna, fjöldi vörunúmera skiptir tugum þúsunda og fjöldi birgja hundruðum. Þá eru sérpantanir á ýmsum vörum daglegt brauð og því má með sanni segja að enginn dagur sé eins á vinnustað eins og hjá Landvélum.
Til stuðnings er úrval tæknimanna og þægilegt aðgengi inn á verkstæði félagsins, þar sem hægt er að renna eða laga til einstaka nippla, rör o.fl.
Við bjóðum upp á útkeyrslu á allar helstu afgreiðslustöðvar og vinnum náið með helstu flutningsaðilum.