Með því að snúa handfanginu er hægt að stilla flæðið frá CF frá 0 og upp í mesta flæði lokans. Magnið sem er umfram fer í framhjáhlaupsportið EF. Það flæði má nota til að stýra annarri rás eða hægt að hleypa því beint í tank.
Þegar búið er að stilla flæðið helst það stöðugt miðað við breytingar á þrýstingi á hvoru porti.
Athugið: Ef CF portið er lokað deilir lokinn með því að loka á flæði um EF port.
Þegar lokar eru notaðir til framhjáhlaups eða til að takmarka flæði verður hitamyndun. Nauðsynlegt getur verið að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að olían hitni um of.