Sog- og þrýstislanga, olíuþolin, Vacupress Oil

Merlett Vacupress Oil og Vacupress Oil PU
Sog- og þrýstislanga

Sterk og slitþolin olíuslanga, (barki) sveigjanleg og mjúk utan sem innan, svört.
Vacupress er sérstaklega gerður til að flytja ýmis olíuefni, eldsneyti (ekki blýlaust bensín), glussa, „blue diesel“, þvagefni o.fl.
Tveggja laga slanga, PVC, PU og Nitrile gúmmí, galv. stálspíral og styrkt með polyester

Öryggisstuðull: 3:1
Hitaþol: -25°C til +55°C

Upplýsingar um efnaþol slangna má finna undir flipanum öryggisblöð.