Showing all 18 results

Enerpac merki

Enerpac – Alvöru iðnaðarverkfæri.

Enerpac er leiðandi framleiðandi á vönduðum vökva- og loftverkfærum og hefur verið að í aðra öld en Enerpac samanstendur af breiðri línu af vökva- og loftverkfærum.  Tjakkar, klippur og glennur, hersluverkfæri, ýmis lyfti- og stillingarbúnaður, vökva- og loftdælur, pressur, afdráttarklær og ýmis sérverkfæri.  Guli liturinn kemur víða við og verkefnin ólík þar sem Enerpac léttir mönnum störfin og gera ótrúlegustu verkefni framkvæmanleg.  Má þar nefna í björgunar- og flutingastarfsemi, byggingaiðnaði, vélsmiðju- og skipasmíði, stillingum og framkvæmdum heilt yfir.

Landvélar er umboðsaðili fyrir Enerpac á Íslandi og leitumst við til að eiga á lager helstu verkfærin ásamt fylgihlutum, olíu, mælum, tengjum og slöngum. Hér fyrir neðan eru helstu verkfærin sem við erum með á lager og hér má svo sjá allt vöruúrval Enerpac.