Sýni eina niðurstöðu

HMF bílkranar                                                                                                                                                                                                                   

HMF – power to lift.

HMF Groub A/S er rótgróið danskt fyrirtæki sem hefur unnið sér inn verðugan sess meðal þeirra bestu í smíði og hönnun á bílkrönum í öllum stærðum og gerðum.

Einkenni HMF eru gæði og styrkur. Kranar HMF eru þekktir fyrir hagkvæmni og langan endingartíma. Áhersla er lögð á vandaða og sterka yfirborðsáferð og að kraninn haldi sínum einkennum og styrk út notkunartímann. Þá er þjónusta HMF traust og trúverðug og hvergi er slakað á kröfum um öryggi, virkni og nákvæmni. Öll vöruþróun er unnin í nánu samstarfi við viðskiptavini og notendur með það að markmiði að hanna og smíða lausn í samræmi við óskir markaðarins.

Allir HMF kranar fara í gegnum nákvæmt gæðaeftirlit og eru framleiddir skv. ISO 9001:2000 gæða stöðlum og með vottun frá Lloyd’s Register Quality Assurance (LRQA).

Eitt af aðalsmerkjum HMF er EVS (Electronic Vehicle Stability) stjórn- og stöðuleikakerfið sem tryggir hámarks virkni og lyftigetu allan lyfti- og hífi ferilinn samhliða því að vera öryggisvörn fyrir yfirlestun o.fl.. Allar nauðsynlegar upplýsingar eru á skjáborði í fjarstýringu kranans og með EVS er kranastjórnandinn með fulla stjórn á sínu verki og það allt í einni fjarstýringu.

Sala á bílkrönum hefur gengið í gegnum hæðir og lægðir hér á Íslandi samhliða sveiflukenndu efnahagslífi en eftir stendur að margir eigendur HMF krana sitja lengi á sínum krana enda lágur rekstrarkostnaður, hröð varahlutaþjónusta og frábær ending raunveruleg upplifun. Við bjóðum ykkur velkomin í þennan hóp.

Öll þjónusta á HMF er unnin á verkstæði Landvéla ehf., Smiðjuvegi 28, Kópavogi. Sjá nánar ítarefni um krana, körfur og smíði HMF á heimasíðu HMF www.hmf.dk

Ekki til á lager

HMF bílkranar

HMF bílkranar

Ekki til á lager