Rover þrýstiaukadælur 

Ítalska fyrirtækið ROVER POMPE sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á miðflóttaraflsdrifnum dælum fyrir landbúnað, matvæla- og drykkjaiðnað. Hentugir miðlar eru allar hreinar lausnir, létt hreinsi- og síunarefni, vatn, saltvatn, mjólk, vín, matvælaolíur og aðrar sambærilegar lausnir. Tannhjóladrifnar dælu má nota fyrir ýmsar olíur, smurefni og eldsneyti (ekki bensín) ef seigjan er innan uppgefinna marka.
Flestar gerðir af Rover dælum eru fáanlegar í brons- eða ryðfríu húsi (NOVAX).
Þrjár grunngerðir eru í boði fyrir mismunandi straum, en það eru Rover BE-M 230V, Rover BE-T 400V og Rover MARINA 12 og 24 volt.
Rover 20B er hitaþolin dæla ( hámark 95°C) sem hentar m.a. fyrir brugg og víngerð. Fyrir seigjukenndari lausnir eins og ólífuolíu, sápuefni og dísel er tannhjóladrifna Rover BE-G rétta dælan. Enn ein útgáfan er svo matvælaviðurkennda Rover Novax T. Einfaldasta dælugerðin er svo Rover Drill en þær eru drifnar af venjulegri borvél.
Flestar Rover dælur geta dælt í báðar áttir (þrívirkur rofi) og 230V dælur eru með 16A tengli.
Heimasíðu framleiðanda má finna hér
Dælur
Ekki til á lager
Borvéladrifnar dælur
