Statorar og rótorar
Landvélar ehf. er umboðaðili fyrir Allweiler og Bellin, en þessi fyrirtæki eru stórir framleiðendur á dælum, m.a. snigil- og smáradælum. En þjónusta okkar nær út fyrir þessi tvö vörumerki.
Í samvinnu við MAF og JEPtec í Skandinavíu og fleiri birgja, getum við útvegað statora og rótora í flestar gerðir af snigildælum (progressive cavity pumps) með tiltölulega stuttum afgreiðslutíma.
M.a. fyrir framleiðendur eins og AHLEX, Allweiler, Bellin, Bornemann, Kiesel, Mono, Netzch, Nemo, Nova Rotors, PCM, Resch, Seepex og Wangen.
Einnig alla helstu íhluti, þétti og fóðringar.
Það eina sem við þurfum er tegund og framleiðslunúmer og sjáum hvort við getum ekki orðið að liði.